T Plús er sérhæft fyrirtæki á sviði bakvinnsluþjónustu. Verkefni félagsins byggja á fjórum stoðum og eru þau að mestu byggð á þjónustu við fjármálafyrirtæki, fagfjárfesta, lífeyrissjóði og vörsluaðila séreignasparnaðar. Starfsfólk T Plús býr yfir margra ára starfsreynslu á fjármálamarkaði og hefur markað sér þá stefnu að veita bestu þjónustu sem völ er á fyrir sanngjarnt verð.
Vörslu- og uppgjörsþjónusta
T Plús býður einstaklingum, fyrirtækjum og fagfjárfestum upp á fjölmarga þjónustuþætti allt frá vörslu verðbréfa til alhliða bakvinnsluþjónustu sem felur í sér m.a. daglegan rekstur á verðbréfakerfum, uppgjöri og vörsluþjónustu, fyrirtækjaaðgerðir, afstemmingar, skýrsluskil, yfirlit, skattaþjónustu og prófanir á upplýsingakerfum.
Dæmi um þjónustuþætti:
- Uppgjör fjármálagerninga
- Varsla eigna
- Afstemming eigna
- Umsjón og frágangur fyrirtækjaaðgerða
- Innheimta skuldabréfa og víxla
- Móttaka og afhending eigna
- Veðsetningar
- Veðsetningar fyrir þriðja aðila
- Vísitölu- og gengisskráningar
- Regluleg viðskiptayfirlit
- Skráningar stofnupplýsinga
Sjóðaþjónusta
T Plús býður upp á alhliða sjóðaþjónustu fyrir rekstrarfélög verðbréfasjóða. Fyrirtækið hefur yfir að ráða upplýsingatæknikerfum sem gerir viðskiptavinum kleift að lækka rekstrarkostnað og ná fram hagræðingu í rekstri. Sjóðaþjónusta felur m.a. í sér vörslu og uppgjör verðbréfa, útreikning gengis og ávöxtunar, eftirliti með fjárfestingarstefnum sjóða, bókhald og skýrsluskil til opinberra aðila.
Dæmi um þjónustuþætti:
- Reikningshald
- Gengisútreikningar
- Ávöxtunarútreikningar sjóða og viðmið þeirra
- Frávikagreining
- Útgáfa hlutdeildarskírteina
- Afstemmingar
- Eftirlit með fjárfestingarstefnum sjóða
- Skýrsluskil
- Útreikningur og uppgjör umsýsluþóknana
Lífeyrisþjónusta
T Plús býður vörsluaðilum lífeyrissparnaðar upp á alhliða umsýslu fyrir séreignarsparnað. Vörsluaðilar sjá sjálfir um fjárfestingar og eignstýringu en T Plús heldur m.a. utan um réttindabókhald sjóðfélaga, gengisútreikning fjárfestingaleiða, afstemmingar, flutning milli vörsluaðila, skýrsluskil og útgreiðslur lífeyris.
Dæmi um þjónustuþætti:
- Réttindabókhald
- Móttaka og skráning samninga
- Móttaka og skráning skilagreina
- Innheimta iðgjalda
- Afstemmingar á iðgjöldum
- Útgreiðslur lífeyris
- Gengisútreikningar
Lánaþjónusta
Eigendur lánasafna geta útvistað innheimtu þeirra til T Plús. Félagið tekur á móti þinglýstum lánasamningum og sér um innheimtu þeirra út líftímann eða fram að lögheimtu. Öll lán eru vistuð í lánakerfi í eigu T Plús. Viðskiptavinir sem útvista lánasöfnum til T Plús geta verið lífeyrissjóðir og fjármálafyrirtæki.
Dæmi um þjónustuþætti:
- Skilgreining lánasniðmáta
- Skilgreining lánaflokka
- Móttaka þinglýstra lánasamninga
- Skráning lánasamninga í lánakerfi
- Útgreiðsla lána
- Afstemmingar
- Lánayfirlit
- Innheimta
- Milliinnheimta
- Skilmálabreytingar
- Samskipti við RSK